Hérna eru læti!

Vel heppnað Route 1 haldin fimmta árið í röð 

Route 1 um landið, var haldin fimmta árið í röð dagana 4.–15. júlí og gekk hún hreinlega vonum framar.

Hjólað í flestum landshlutum.

Alls voru æfingadagarnir átta, dreifðir hringinn í kringum Ísland, þar sem dagarnir byrjuðu á upphitinum klukkan 9 að morgni, æft fram til klukkan 17. Þjálfunin í ár var í höndum þeirra Brian Jorgensen, Josh Spinks og Mána Freys ásamt nokkrum gestaþjálfurum. Ferðin hófst með tveimur hjóladögum í Bolaöldu, þaðan var haldið norður á Akureyri, síðan var farið á Egilstaði og svo var lokastoppið var tekið á Höfn í Hornafirði. Á hverjum stað var iðkendum skipt niður í hópa eftir hjólastærð, allt frá 50cc og upp úr, svo yngstu iðkendurnir jafnt sem þeir vanari fengu æfingar við hæfi. Í ferðinni voru um 130 einstaklingar sem tóku þátt.

Miklu meira en bara æfingar
Route 1 hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem frábær fjölskylduskemmtun, og það sannaðist enn og aftur í ár. Krakkar og fullorðnir úr ólíkum landshlutum, sem annars hittast sjaldan, náðu saman á æfingasvæðum hringinn í kringum landið – og fyrir marga unga og efnilega iðkendur var þetta kærkomið tækifæri til að æfa með þjálfurum sem hafa margra ára reynslu að baki.

MSÍ mælir hiklaust með Route 1 fyrir alla, hvort sem fólk er nýbyrjað á hjólinu eða vanir kappar, og þakkar öllum þeim iðkendum, fjölskyldum og sjálfboðaliðum sem tóku þátt og gerðu fimmtu Route 1 hringferðina að þeirri bestu hingað til.
 

26. July 2026 23:30