Hérna eru læti!

Coupe de l’Avenir 2026

Nú er keppninni lokið og íslenska U21-landsliðið í motocross lauk keppni í 11. sæti meðal sterkustu unglingalandsliða Evrópu.

Þetta var í fimmta sinn í röð sem Ísland sendir fullskipað lið til keppni í Coupe de l’Avenir. Frá því að MSÍ hóf þátttöku árið 2022 hefur verkefnið vaxið jafnt og þétt og orðið mikilvægur þáttur í uppbyggingu íslensks motocross og þróun ungra íslenskra keppenda.

Í 65cc flokki kepptu Máni Mjölnir Guðbjartsson, Viktor Ares Eiríksson og Magnús Tumi Hilmarsson.

Þeir hafa allir keppt áður og mættu með skýr markmið fyrir þessa keppni: að stökkva RISA palla og halda í við þá hröðustu. Það gerðu þeir allir með glæsibrag. Þeir sýndu mikinn vilja, hugrekki og framfarir og voru sannarlega góðir fulltrúar Íslands.

Í 85cc flokki náði Aron Dagur Júlíusson frábærum árangri. Hann hafnaði best í 23. sæti af 40 keppendum og gaf þeim allra hröðustu ekkert eftir.

Olivier Cegielko var einnig að hjóla mjög vel þar til hjólið bilaði á versta mögulega stað. Hann datt illa í fyrsta motoi og varð því miður að draga sig úr keppni. Olivier sýndi þó frábæran hraða og mikinn karakter áður en óhappið varð.

Árni Þór Steinþórsson var að keppa í fyrsta sinn á þessari braut, en það var ekki að sjá. Hann hjólaði eins og hershöfðingi, sýndi ótrúlegan hraða í mörgum hringjum og lauk keppni rétt utan við topp 30. Það er því augljóst að það frábæra starf sem STRAX er að vinna fyrir austan er að skila sér.

Stóru strákarnir okkar, þeir Arnór Elí Vignisson, Alexander Adam Kuc og Máni Freyr Pétursson, mættu einnig með stór markmið.

Arnór Elí endaði í 11. sæti í sínum flokki eftir fáránlega spennandi keppni við tvo aðra 125cc ökumenn. Hann sýndi mikinn hraða, úthald og baráttuvilja alla helgina.

Máni Freyr og Alexander áttu svo alveg ótrúlegar syrpur. Máni tók fram úr ökumönnum á heimsklassa eins og þeir væru stopp og vann sig hratt upp á hverjum hring.

Lexi var síðan eins og vélmenni á brautinni. Hann hafði ekkert fyrir því að halda 450cc hjólum fyrir aftan sig á 250cc hjólinu og sýndi hversu langt er hægt að ná með miklum metnaði, aga og góðum undirbúningi.

Það sást greinilega á öllum keppendum okkar að þeir hjóluðu af miklum metnaði fyrir verkefninu og voru staðráðnir í að gera sitt allra besta fyrir íslenska liðið.

Keppnin sjálf var gríðarlega krefjandi og gaf íslenskum ökumönnum tækifæri til að mæta sterkum keppendum frá löndum þar sem motocross hefur verið stundað af miklum krafti í áratugi.

Fyrir okkar keppendur snýst verkefnið ekki aðeins um úrslitin sjálf, heldur einnig um reynslu, lærdóm, liðsheild, undirbúning og það að keppa fyrir Íslands hönd á alþjóðlegum vettvangi.

Við viljum færa öllum keppendum okkar sérstakar hamingjuóskir með frammistöðuna og þakka þeim fyrir að standa með stolti undir íslenska fánanum. Þeir lögðu allir hart að sér, sýndu mikinn metnað og stóðu sig með sóma bæði innan brautar og utan.

Við viljum einnig færa foreldrum, fjölskyldum og aðstandendum keppendanna okkar innilegar þakkir. Á bak við hvert landsliðsverkefni er mikil vinna, undirbúningur, ferðalög, kostnaður og ótal tímar sem fara í að gera keppendum kleift að taka þátt.

Stuðningur fjölskyldnanna skiptir því ómetanlegu máli.

Sérstakar þakkir færum við styrktaraðilum liðsins:

DroneFly

DroneFly sá um upptökubúnað sem var notaður á æfingum og gerði undirbúninginn 1000 sinnum auðveldari.

Myndavélarnar sem við notuðum voru DJI Osmo Nano og DJI Osmo Pocket 4P. Við mælum eindregið með þessum búnaði fyrir alla sem vilja bæta æfingar og undirbúning.

Það breytti algjörlega leiknum fyrir liðsstjórann að geta farið yfir myndefnið með keppendum og rætt nákvæmlega hvar og hvernig væri hægt að bæta sig. Slíkur búnaður hjálpaði okkur að nýta æfingarnar betur og undirbúa keppendurna fyrir þær krefjandi aðstæður sem biðu þeirra í Belgíu.

Caveman

Caveman hefur í mörg ár stutt við íslenskt motocross og íslenska landsliðið. Við erum afar þakklát fyrir þann stuðning og samstarf sem hefur byggst upp í gegnum árin.

Við erum nú að hanna peysur í samstarfi við Caveman sem koma fljótlega til sölu og munum kynna þær með stolti þegar þær eru tilbúnar.

Caveman, sem er til húsa að Smiðjuvegi 4, vinnur óeigingjarnt starf allt árið og kemur að fjölmörgum mótorhjólatengdum viðburðum. Það skiptir miklu máli fyrir samfélagið okkar að hafa fyrirtæki sem styðja svona vel við íþróttina og ungu kynslóðina.

 

Brunahólf

Brunahólfsmótið fór vonandi ekki fram hjá neinum í sumar. Stuðningur Brunahólfs við barna- og unglingastarf í motocross hefur verið gríðarlegur og eigum við þeim bestu þakkir skildar fyrir að sinna ungu kynslóðinni af slíkum metnaði.

Með því að halda bikarmót fyrir unga keppendur fá þeir tækifæri til að keppa, öðlast reynslu og undirbúa sig fyrir verkefni eins og Coupe de l’Avenir.

Það er einmitt með svona starfi sem framtíðarökumenn verða til. Brunahólf á því stóran þátt í því að skapa þann grunn sem þarf til að byggja upp sterkt íslenskt landslið í framtíðinni.

Stuðningur DroneFly, Caveman og Brunahólfs gerði okkur kleift að mæta til keppni með sterkari og betri undirbúning. Hvert framlag skiptir máli og hjálpar okkur að skapa betri umgjörð fyrir unga íslenska keppendur.

Við viljum einnig þakka þeim fjölmörgu Motocross klúbbum um allt land fyrir stuðninginn, hvatninguna og það mikilvæga starf sem unnið er allt árið.

Án öflugs félagsstarfs, æfingasvæða, þjálfara, sjálfboðaliða og allra þeirra sem halda íþróttinni gangandi væri ekki hægt að byggja upp landslið sem getur keppt á þessum vettvangi.

Það er sameiginlegt verkefni okkar allra að skapa næstu kynslóð íslenskra Motocross ökumanna góð tækifæri til að vaxa og dafna.

Með áframhaldandi stuðningi getum við haldið áfram að senda íslensk lið erlendis, veita keppendum okkar mikilvæga reynslu og byggja upp enn sterkari framtíð fyrir motocross á Íslandi.

Kærar þakkir til allra sem komu að verkefninu og lögðu sitt af mörkum.

Við erum stolt af liðinu, stolt af íslenska fánanum og þakklát fyrir þann mikla stuðning sem íslenskt motocross nýtur.

Áfram Ísland

Guðbjartur Ægir Ágústsson

11. October 2026 00:00