Hérna eru læti!

U21 landsliðið keppir á Coupe de l'Avenir fimmta árið í röð

U21 landsliðið keppir á Coupe de l'Avenir fimmta árið í röð

Íslenska U21 landsliðið í motocross keppir nú um helgina á Coupe de l'Avenir í Belgíu. Þetta er fimmta árið í röð sem Ísland sendir fullskipað lið í keppnina.

Verkefnið hefur vaxið hratt frá því að MSÍ hóf þátttöku árið 2022 og hefur fært íslenskum ökumönnum dýrmæta reynslu á alþjóðlegum vettvangi. Keppnin býður upp á harða samkeppni við sterkustu landslið Evrópu í þessum aldursflokki og er mikilvægur liður í uppbyggingu næstu kynslóðar íslenskra keppenda.

Skipan liðsins 2026

65cc flokkur

Máni Mjölnir Guðbjartsson

Viktor Ares Eiríksson

Magnús Tumi Hilmarsson

85cc flokkur

Aron Dagur Júlíusson

Olivier Cegielko

Árni Þór Steinþórsson

Open flokkur

Arnór Elí Vignisson

Alexander Adam Kuc

Máni Freyr Pétursson

Liðsstjóri á Coupe de l'Avenir er Guðbjartur Ægir Ágústsson.

MSÍ óskar öllum keppendum góðs gengis og hvetur íslenska motocross-áhugamenn til að fylgjast með framgöngu liðsins á erlendri grundu.

 

25. September 2026 20:47