Hérna eru læti!

Mikið um kvartanir þar sem verið er að stytta sér leið 

Því miður hafa borist óvenju margar kvartanir á undanförnum mótum þar sem keppendur hafa styttt sér leið og farið ekki eftir réttri braut.

Fallin stika eyðir ekki hliðinu!

Ef stika fellur — hvort sem það er vegna annars keppanda, veðurs eða annars — er upphafleg lögun brautar enn í fullu gildi. Keppendur eiga að fara eftir brautinn eins og hún var skilgreind í upphafi.

Samkvæmt FIM reglum, sem MSÍ styðst við, eiga keppendur að fara um öll hlið í réttri röð. Fallin stika gefur ekki leyfi til að stytta ferilinn.

Á meðfylgjandi mynd má sjá dæmi um þetta: rauða línan sýnir óleyfilegan feril sem fer framhjá lykkjunni sem stikurnar afmarka. Þetta telst brot á reglum (course cutting) og getur leitt til tímavítis eða brottvísunar.

(Mynd: Rauð lína = óleyfil leið. Græn lína = réttur ferill.)

Við hlökkum til að sjá ykkur á réttri braut !

11. June 2026 00:00