Landslið Íslands í motocross 2026
Valið á ökumönnum í íslenska landsliðið í motocross fyrir árið 2026 hefur nú verið staðfest.
Landslið Íslands á MXoN á Ernée í Frakklandi
Keppnin fer fram í Ernée í Frakklandi dagana 2.–4. október næstkomandi, þar sem lönd heims etja kappi í einni stærstu liðakeppni í motocross. Ungt og efnilegt lið sem verður gaman að fylgjast með ár.
Landsliðið skipa:
MX1: Ingvar Sverrir Einarsson
MX2: Eric Máni Guðmundsson
MX Open: Tristan Berg Arason
Liðsstjóri á MXoN er Ragnheiður Brynjólfsdóttir

U21 landsliðið keppir í fimmta sinn í röð á Coupe de l’Avenir
Þetta er fimmta árið í röð sem Ísland tekur þátt í keppninni, sem er ein helsta alþjóðlega ungmenna Motocross keppni í Evrópu, ætluð efnilegum ökumönnum undir 21 árs aldri.
Verkefnið hefur verið í örum vexti síðan MSÍ hóf þátttöku árið 2022, og hefur gefið íslenskum ökumönnum dýrmæta reynslu í alþjóðlegu samhengi.
Keppnin fer fram í Belgíu dagana 25. -27.september og býður upp á öfluga samkeppni við sterkustu landslið Evrópu í þessum aldursflokki.
Skipan liðsins 2026 eftir flokkum:
65cc flokkur:
- Máni Mjölnir Guðbjartsson
- Viktor Ares Eiríksson
- Magnús Tumi Hilmarsson
85cc flokkur:
- Aron Dagur Júlíusson
- Olivier Cegielko
- Árni Þór Steinþórsson
125cc flokkur:
- Arnór Elí Vignisson
MX2 flokkur:
- Alexander Adam Kuc
MX1 flokkur:
- Máni Freyr Pétursson
Liðsstjóri á Coupe de l’Avenir er Guðbjartur Ægir Àgústsson.
MSÍ óskar öllum keppendum góðs gengis og hvetur íslenska motocross aðdáendur til að fylgjast með framgöngu þeirra á erlendri grundu.
13. August 2026 11:54






