| Sæti | Nafn | Félag | Flokkur | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Jóhann Egilsson | BA | Fjórhjól (FJ) | 0 |
| 2 | Jóhannes Friðrik Tómasson | BA | Fjórhjól (FJ) | 0 |
| 3 | Atli Már Egilsson | BA | Fjórhjól (FJ) | 0 |
| Sæti | Nafn | Félag | Flokkur | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Ármann Örn Sigursteinsson | KKA | Mótorhjól 1 cyl (1C) | 0 |
| 2 | Daníel Freyr Jónsson | BA | Mótorhjól 1 cyl (1C) | 0 |
| 3 | Baltasar Leví Vilbergsson | KKA | Mótorhjól 1 cyl (1C) | 0 |
| 4 | Friðrik Þór Ómarsson | BA | Mótorhjól 1 cyl (1C) | 0 |
| 5 | Ómar karl hreinsson | KKA | Mótorhjól 1 cyl (1C) | 0 |
| Sæti | Nafn | Félag | Flokkur | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Ármann Örn Sigursteinsson | KKA | Mótorhjól 2 cyl + (2C+) | 0 |
| 2 | Baltasar Leví Vilbergsson | KKA | Mótorhjól 2 cyl + (2C+) | 0 |
| 3 | Ómar karl hreinsson | KKA | Mótorhjól 2 cyl + (2C+) | 0 |
| Sæti | Nafn | Félag | Flokkur | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Kristofer Gretarsson | BA | Unglingaflokkur (MU) | 0 |
| 2 | Helgi þór Jakobsson | KKA | Unglingaflokkur (MU) | 0 |
| 3 | Ómar karl hreinsson | KKA | Unglingaflokkur (MU) | 0 |
| Sæti | Nafn | Félag | Flokkur | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Ármann Örn Sigursteinsson | KKA | Vélsleðar (V) | 0 |
BLIKK & TÆKNI sandspyrnan
BLIKK & TÆKNI sandspyrnan verður haldin sunnudaginn 12. september.
Keppnin er jafnframt 3. umferð Íslandsmóts í sandspyrnu verður haldin á Aksturssvæði Bílaklúbbs Akureyrar.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS/MSÍ og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
Mótorhjól Msí
Unglingaflokkur (MU)
Unglingaflokkur 12-15 ára / 85cc og undir (U15)
Mótorhjól 1 cyl (1C)
Mótorhjól 2 cyl + (2C+)
Fjórhjól (FJ)
Vélsleðar (V)
Dagskrá keppninnar verður sem hér segir:
10:00 svæðið opnar
10:30 Mæting keppenda
10:35 Skoðun hefst
11:00 Pittur lokar
11:30 Skoðun lýkur
11:45 Keppendafundur
12:00 Tímataka
13:30 Tímatöku lýkur
13:45 Kepni hefst
15:30 Áætluð keppnislok
Barnaflokkur er keyrður í 30 mínutur eða á meðan kærufrestur er.
Kærufrestur er í 30 mínutur eftir að bráðabirðaúrslit eru birt.
Verðlauna afhending á sandspyrnu braut við ljósin.
Keppnisstjóri Hrefna Björnsdóttir
Skoðunarmaður Baldur Pálsson
Öryggisfulltrúi Þóra Flosadóttir
Formaður dómnefndar Einar Gunnlaugsson
Dómnefndarmenn Anna Jón og Veilberg Njáll
Verð 13000
Framkvæmdanefnd Einar Gunnlaugsson, Hrefna Björnsdóttir, Þóra Kristín Skráningu lýkur 10. september 2026-kl.17:00
Bílaklúbbur Akureyrar
12. September 2026 kl: 10:00
Bílaklúbbur Akureyrar BA
Sandspyrna
Skráning hefst: 27. July 2026 kl: 09:00
Skráningu lýkur: 10. September 2026 kl: 17:00
Skráningargjald: 13000 kr.-
Fjórhjól (FJ)
Mótorhjól 1 cyl (1C)
Mótorhjól 2 cyl + (2C+)
Unglingafl 12-16 ára / 85cc og undir (U16)
Unglingaflokkur (MU)
Vélsleðar (V)
SÉRREGLUR BLIKK & TÆKNI sandspyrnan í mótröð Íslandsmeistaramót - 3 umferð
GREIN 1 KEPPNIN
1.1 Keppnin heitir BLIKK & TÆKNI sandspyrnan.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar,
keppnisgreinarreglum AKÍS/MSÍ fyrir spyrnu og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á Sandspyrnubraut BA 91,44 m þann 12. september
2026 kl: 12:00.
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema ef ekki viðrar til aksturs að
mati keppnisstjóra, dómnefndar eða öryggisfulltrúa eða ef til koma Force
Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti
10 skráningar.
1.5.1 Ekki er keppt í tilteknum keppnisflokki nema að lágmarki
3 skráningar berist fyrir hann.
GREIN 2 KEPPNISHALDARI
2.1 Keppnishaldari er Bílaklúbbur Akureyrar, til heimilis að
Hlíðarfjallsveg 13, 603 Akureyri.
GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Einar Gunnlaugsson, Þóra Kristín og Hrefna
Björnsdóttir.
3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur Hlíðarfjallsveg 13, 603 Akureyri.
GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ
GREIN 4.1 BRAUTIN
4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokkum sem keppt
verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Brautin er ekin frá austri til vestura.
4.1.3 Brautin er 91,44 metra (300 fet) löng.
GREIN 4.2 PITTURINN
4.2.1 Gönguhraði er í pitti.
GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA
5.1 KEPPNISFLOKKAR
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa
gerðarsamþykki brautarinnar:
5.1.1.a
Mótorhjól Msí
Unglingaflokkur (MU)
Unglingaflokkur 12-15 ára / 85cc og undir (U15)
Mótorhjól 1 cyl (1C)
Mótorhjól 2 cyl + (2C+)
Fjórhjól (FJ)
Vélsleðar (V)
.
5.1.2 Þegar úrslit liggja fyrir í öllum flokkum er keppt í Allt flokki
bæði bíla og mótorhjóla.
5.1.3 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í
eru gjaldgeng í keppninni.
GREIN 6 SKRÁNING
6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til
keppni.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS/MSÍ.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum
6.4 Almennri skráningu lýkur þann 2026-09-10 17:00
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í
þessari keppni.
6.6 Skráningargjald er kr. 12000 fyrir fullorðna og 6000 fyrir 12-17 ára
og leggst keppnisskirteini AKÍS eða MSÍ ofan á það.
6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS/MSÍ , ef við
á.
GREIN 7 TRYGGINGAR
7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa
ábyrgðartryggingu.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem
þeim sjálfum þykir ástæða til.
GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B
samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu
frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1
við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi
nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem
þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina
keppanda og ökumanns frá AKÍS/MSÍ og þurfa þeir því ekki að framvísa
þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA
9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á
upplýsingatöflu keppninnar.
9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum í afturrúðu að ofanverðu horni
bílstjóramegin;
9.2.2 staðsett á ökutækjum í mótorhjólaflokkum að framan;
9.2.3 í hvítum lit, eða því sem næst;
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.
9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.
9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög
landsins.
GREIN 10 RÆSING
GREIN 10.1 ALMENNT
10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.
GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímataka klukkan 11:15. Ræst úr kyrrstöðu.
10.2.1.c Útsláttarkeppni klukkan 13:00. Ræst úr kyrrstöðu.
GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU
10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.
10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og
stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann
allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri
vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á
slóðinni https://https://mot.akis.is/keppni/upplysingatafla/585 .
11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna,
ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til
þeirra þar til keppni lýkur.
11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt
Reglubók FIA, grein 13.
11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS/MSÍ fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.
GREIN 12 ÚRSLIT
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum MSÍ um spyrnu.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og
tímavörður hefur tekið þau saman.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd
hefur lokið störfum.
GREIN 13 VERÐLAUN
13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1. og 2. sæti í
lokaúrslitum.
13.2 Verðlaun í Allt flokkum eru veitt fyrir 1. sæti, ef hann verður
keyrður.
GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN
GREIN 14.1 DÓMNEFND
14.1.1 Dómnefnd skipa Einar Gunnlaugsson, sem jafnframt er formaður
hennar, Anna Jóna Garðarsdóttir og Vilberg Njáll Jóhannesson.
GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN
14.2.1 Keppnisstjóri er Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir.
14.2.2 Skoðunarmaður er Baldur Pálsson.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Hrefna Björg Waage Björnsdóttir.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni
þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem
krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn,
starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi
annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa
keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki
hans.
GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki
áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka
keppendur eða ökumenn, telji hann
þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um
atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að
slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að
umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi
lög og reglur.
| Nafn | Félag | Flokkur |
|---|---|---|
| Helgi þór Jakobsson | KKA | Unglingaflokkur (MU) |
| Kristofer Gretarsson | BA | Unglingaflokkur (MU) |
| Ómar karl hreinsson | KKA | Unglingaflokkur (MU) |
| Ármann Örn Sigursteinsson | KKA | Mótorhjól 1 cyl (1C) |
| Baltasar Leví Vilbergsson | KKA | Mótorhjól 1 cyl (1C) |
| Daníel Freyr Jónsson | BA | Mótorhjól 1 cyl (1C) |
| Friðrik Þór Ómarsson | BA | Mótorhjól 1 cyl (1C) |
| Ómar karl hreinsson | KKA | Mótorhjól 1 cyl (1C) |
| Ármann Örn Sigursteinsson | KKA | Mótorhjól 2 cyl + (2C+) |
| Baltasar Leví Vilbergsson | KKA | Mótorhjól 2 cyl + (2C+) |
| Ómar karl hreinsson | KKA | Mótorhjól 2 cyl + (2C+) |
| Atli Már Egilsson | BA | Fjórhjól (FJ) |
| Jóhann Egilsson | BA | Fjórhjól (FJ) |
| Jóhannes Friðrik Tómasson | BA | Fjórhjól (FJ) |
| Ármann Örn Sigursteinsson | KKA | Vélsleðar (V) |