Hérna eru læti!

Spyrna Bikarmót BA.

Myndir

Hér vantar einhverjar myndir!

Fréttir

Úrslit

 G+ flokkur

Sæti Nafn Félag Flokkur Stig
0 Tryggvi Snær Friðjónsson BA  G+ flokkur 0

Um keppnina

Bílaklúbbur Akureyrar heldur aðra umferð bikarmóts  í áttungsmílu 09. júlí 2026 á spyrnubraut Bílaklúbbs Akureyrar.

Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:


Mótorhjól  
 G+ flokkur
 G- flokkur
 B flokkur
 O flokkur

Ekki er ræst í riðlum í þessari keppni.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1.og 2. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.

Dagskrá

Áætluð dagskrá keppninnar verður sem hér segir:

17:30 móttaka keppenda hefst

17:45 skoðun hefst

18:00 pittur lokar

18:15 skoðun lýkur

18:30 keppendafundur

19:00 tímatökur hefjast

19:50 tímartökum lýkur

20:00 keppni hefst

21:30 áætluð keppnislok og kærufrestur byrjar

22:00 kærufresti lýkur

Verðlaunaafhending verður á palli hjá spyrnubraut. 

Veitt eru verðlaun fyrir 1. og 2. sætið í hverjum flokki

Birt með fyrirvara um fjölda keppenda og þess háttar.

 

Mótaröð

 

2026- spyrna-bikarmót í spyrnu

 

Starfsmenn:

Keppnisstjóri: Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir

 

Skoðunarmaður. Baldur Pálsson

 

Öryggisfulltrúi Valdimar G Valdimarsson

 

Formaður Dómnefndar: Arnar Smári Signýjarson

 

Dómnefnd 1. Hrefna Björnsdóttir

 

Dómnefnd 2. Vilberg Njáll Jóhannesson

 

Framkvæmdanefnd: Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir, Arnar Smári Signýjarson og Valdimar G Valdimarsson

 

Skránngu lýkur 07.07 kl 17.00

 

Almennt skráningagjald 12.000, ofan á það bætist keppninsskírteini MSÍ

 

ungmennaafsláttur 50%

 

 

 

Félag

Bílaklúbbur Akureyrar

Dagsetningar

9. July 2026 kl: 17:30


Brautir og vegalengdir

Bílaklúbbur Akureyrar BA


Tegund/mótaröð

Spyrna

Skráningargjöld

Skráning hefst: 1. July 2026 kl: 22:00

Skráningu lýkur: 7. July 2026 kl: 17:00

O - flokkur: 13000 kr.-

 B flokkur: 13000 kr.-

 G+ flokkur: 13000 kr.-

 G- flokkur: 13000 kr.-


Flokkar

O - flokkur

 B flokkur

 G+ flokkur

 G- flokkur


SÉRREGLUR Bikarmót BA í spyrnu. 2 umferð.

GREIN 1 KEPPNIN

1.1 Keppnin heitir Bikarmót BA í spyrnu.

1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir spyrnu og þessum sérreglum.

1.3 Keppnin fer fram á Spyrnubraut BA, Hlíðarfjallsvegi 13 þann 9. júlí 2026 kl: 20:00.

1.4 Keppninni verður ekki frestað nema ef ekki viðrar til aksturs að mati keppnisstjóra, dómnefndar eða öryggisfulltrúa eða ef til koma Force Majeure aðstæður.

1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
1.5.1  Ekki er keppt í tilteknum keppnisflokki nema að lágmarki 3 skráningar berist fyrir hann.

GREIN 2 KEPPNISHALDARI

2.1 Keppnishaldari er Bílaklúbbur Akureyrar, Hlíðarfjallsvegur 13, 603 Akureyri. 

GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND

3.1 Framkvæmdanefnd skipa Þóra Kristín Flosadóttir Hafdal, Arnar Smári Signýjarson og Valdimar G Valdimarsson.

3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur í húsnæði Bílaklúbbs Akureyrar.

GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ

GREIN 4.1 BRAUTIN

4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem  heimil er þátttaka í keppninni.

4.1.2 Brautin er ekin frá austri til vesturs

4.1.3 Brautin er:
4.1.3.a 201 metra (660 fet) löng.

GREIN 4.2 PITTURINN

4.2.1 Veiturafmagn (230 volt AC) er að jafnaði í boði en framboð tengla er takmarkað.

GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA

5.1 KEPPNISFLOKKAR

5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:

5.1.1.a Bílar
5.1.1.a.i A/G
5.1.1.a.ii A/F
5.1.1.a.iii A/E
5.1.1.a.iv A/D
5.1.1.a.v A/C
5.1.1.a.vi A/B
5.1.1.a.vii A/A
5.1.1.a.viii DS flokkur
5.1.1.a.ix OF flokkur

5.1.1.b Mótorhjól
5.1.1.b.i MA/E
5.1.1.b.ii MA/D
5.1.1.b.iii MA/C
5.1.1.b.iv MA/B
5.1.1.b.v MA/A
5.1.1.b.vi G +
5.1.1.b.vii G -
5.1.1.b.viii B

5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.

GREIN 6 SKRÁNING

6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.

6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.

6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.

6.4 Almennri skráningu lýkur þann 2026-07-07 17:00:00.

6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.

6.6 Keppnisgjald er kr. 12.000 og ofan á það leggst keppnisskírteini AKÍS, 3000 kr.

6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS.

GREIN 7 TRYGGINGAR

7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.

7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.

GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI

8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.

8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1  við mætingu á keppnisstað.

8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.

GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA

9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.

9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum í afturrúðu að ofanverðu horni bílstjóramegin;
9.2.2 staðsett á ökutækjum í mótorhjólaflokkum að framan;
9.2.3 í hvítum lit, eða því sem næst;
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.

9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.

9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.

GREIN 10 RÆSING

GREIN 10.1 ALMENNT

10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.

GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN

10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímataka klukkan 19:00. Ræst úr kyrrstöðu.
10.2.1.c Útsláttarkeppni klukkan 20:00. Ræst úr kyrrstöðu.

GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU

10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.

10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.

GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA

11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.

11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni https://https://mot.akis.is/keppni/upplysingatafla/570.

11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.

11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.

11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.

GREIN 12 ÚRSLIT

12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um spyrnu.

12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímavörður hefur tekið þau saman.

12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.

GREIN 13 VERÐLAUN

13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1. og 2. sæti í lokaúrslitum.

GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN

GREIN 14.1 DÓMNEFND

14.1.1 Dómnefnd skipa Arnar Smári Signýjarson, sem jafnframt er formaður hennar, Hrefna Björg Waage Björnsdóttir og Vilberg Njáll Jóhannesson.

GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN

14.2.1 Keppnisstjóri er Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir.

14.2.2 Skoðunarmaður er Baldur Pálsson.

14.2.3 Öryggisfulltrúi er Valdimar G Valdimarsson.

14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.

14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.

GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA

14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.

14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann

þörf á því.

14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.

14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.

GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA

14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.

Skráðir þátttakendur

Nafn Félag Flokkur
Tryggvi Snær Friðjónsson BA  G+ flokkur